Vegagerðin óskar eftir tilboðum í í byggingu sjóvarna við Sæból og Framnes norðan Dalvíkur.
Um er að ræða 50 m framlengingu á sjóvörn við Sæból og 120 m nýja sjóvörn við Framnes.
Heildarmagn af flokkuðu grjóti og sprengdum kjarna um 2.000 m³.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. janúar 2022.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 16. ágúst 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 31. ágúst 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.