Húsnæðissamvinnufélagið Búfesti hsf. hefur rift samningi sínum við Faktabrygg ehf. um byggingu raðhúsa á Húsavík, þar sem í ljós kom að jarðskjálftavörnum í húsunum var ábótavant. Vikublaðið greinir frá.
Húsavík stendur á einu virkasta jarðskjálftabelti landsins og því kröfur um jarðskjálftavarnir strangari en víða annarsstaðar á landinu.
Gert var ráð fyrir að tvö raðhús, hvort um sig með sex íbúðum, yrðu tilbúin til afhendingar í lok janúar 2021 en síðastliðið haust kom í ljós að jarðskjálftavörnum í húsnæðinu var ábótavant – ekki var hægt að setja stálbita í húsin þar sem búið var að koma fyrir límtré.
Kostnaður vegna breytingana hleypur á tugum milljóna en búfesti hefur samkvæmt samningi greitt Fakta ehf. eftir framvindu.
Þá segir í umfjöllun Vikublaðsins að greiðslur hafi ekki skilað sér til undirverktaka, sem lögðu niður störf fyrir tæpum tveimur mánuðum. Húsin standi því enn ókláruð.
Ekki náðist í Eirík H. Hauksson framkvæmdastjóra Búfesta við vinnslu fréttarinnar.
Neimild: Mbl.is