Gröfuþjónusta Steins hefur hafið vinnu við gatnagerð og lagnir í framhaldi af austurhluta Suðurhóla á Selfossi.
Kostnaðaráætlun verksins var 106,8 milljónir en Steinn bauð 83,4 milljónir í verkið.
Gatan mun tengja saman Suðurhólana og Gaulverjabæjarveginn saman.
Í aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar er skipulagt íbúðasvæði norðvestan við veginn.
Auk þess er gert ráð fyrir lóð merkta samfélagssvæði.
Heimild: Dfs.is