Vegna mikilla verkefna framundan vill Eykt ehf. ráða verkstjóra með reynslu af uppsteypu til starfa við stjórnun framkvæmda á vegum félagsins.
Helstu verkefni:
• Dagleg verkstjórn og skipulag verkefna á byggingasvæðum Eyktar
• Starfsmannahald og skipulag aðfanga í samráði við verkefnisstjóra
• Eftirfylgni með gæðakerfi Eyktar
Menntun og hæfni:
• Hæfni til samvinnu og jákvæðra samskipta
• Meistararéttindi í húsasmíði kostur
• Skipulag og agi í vinnubrögðum
Tekið er við umsóknum með upplýsingum um menntun og starfsreynslu á skrifstofu Eyktar á Stórhöfða 34–40 eða með tölvupósti á palld@eykt.is.
Upplýsingar um starfið veitir Páll Daníel Sigurðsson, framkvæmdastjóri, á skrifstofu Eyktar.