Óskum eftir að ráða verkstjóra til starfa á höfuðborgarsvæðinu.
Starfið felst í stýringu verkefna og mannafla á vinnustöðum fyrirtækisins.
Fyrirliggjandi verkefni eru við uppsteypu, uppsetningu og frágang einingahúsa úr timbri að utan og innan, ásamt þakvinnu og öðrum tilfallandi verkefnum.
Verkstjóri ber einnig ábyrgð á daglegu verkbókhaldi vinnustaða/r, útfyllingu á dagskýrslum, umsjón með aðföngum ásamt daglegum samskiptum við verkkaupa á verkstað.
Hæfniskröfur
Iðnréttindi
Reynsla af stjórnun verkefna og mannafla
Tölvukunnátta er kostur.
—————————————————————————————————
Óskum eftir að ráða húsasmiði og verkamenn til ýmissa verkefna á hörfuðborgarsvæðinu.
Mótavinna, uppsetning timbur/steyptra einingahúsa ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.
Hæfniskröfur
Iðnréttindi eða amk 5 ára reynsla.
Krana og vinnuvélaréttindi kostur
Hægt er að sækja um á heimasíðu okkar www.ogsynir.is eða með tölvupósti á ogsynir@ogsynir.is