Home Fréttir Í fréttum 12.08.2021 Kleppsvegur 150-152. Uppbygging og fullnaðarfrágangur

12.08.2021 Kleppsvegur 150-152. Uppbygging og fullnaðarfrágangur

288
0
Kjarni við Kleppsveg sem Reykjavíkurborg hefur fest kaup á. Mynd.Reykjavíkurborg

F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Kleppsvegur 150-152. Uppbygging og fullnaðarfrágangur, Útboð nr. 15264

Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 14:00 þann 13. júlí 2021, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is   Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.

Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00, 12. ágúst 2021.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni  https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2021

Lýsing á verkefninu:

Verkið felst í niðurrifi og uppbyggingu á fyrirhuguðum leikskóla sem og fullnaðarfrágangi lóðar í kringum Kleppsveg 150-152, Reykjavík. Húsnæðið er á tveimur hæðum, leikskóli á efri hæð og í neðri kjallara eru geymslur og tækni rými.

Heildarstærð húsnæðis er 2147 m2 sem skiptist upp í 1070 m2 jarðhæð og 1077 m2 kjallara.

Helstu verkþættir eru:

  • Niðurrif innanhúss á Kleppsvegi 152
  • Uppbygging og fullnaðarfrágangur húsnæðis
  • Endurnýjun gluggakerfis
  • Endurnýjun þakvirkis
  • Uppbygging tengibyggingar
  • Lagning raf-, loftræsti og lagnakerfa
  • Niðurrif, færsla og uppbygging ramps
  • Fullnaðarfrágangur lóðar

Vakin er sérstök athygli á því að verkkaupi hyggst fá alþjóðlega umhverfisvottun samkvæmt BREEAM á framkvæmdina.

Verklok 1. áfanga 22. apríl 2022

Verklok 2. áfanga 23. júní 2022

Verklok 3. áfanga 22. júlí 2022