F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Suðurlandsbraut 68 – 74. Göngu- og hjólastígur, Útboð nr. 15260
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 14:00 þann 6. júlí 2021, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00, 21. júlí 2021.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2021
Lýsing á verkefninu:
Framkvæmdin felur í sér gerð göngu- og hjólastíga frá göngubrú yfir Miklubraut á móts við Rauðagerði meðfram nýjum lóðum við Suðurlandsbraut til tengingar við stíga við Steinahlíð ásamt gerð hljóðmanar við Miklubraut.
Helstu verkþættir eru:
- Jarðvegsskipti
- Malbikun
- Mótun hljóðmanar
- Þökulögn
- Götulýsing
Helstu magntölur eru:
• Gröftur 1.250 m3
• Fylling 1.000 m3
• Malbikun 1.090 m2
• Þökulögn 2.600 m2
• Reising ljósastólpa 11 stk
Lok framkvæmdatíma 31. október 2021