Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdum við nýja veg yfir Dynjandisheiði mun ljúka árið 2024

Framkvæmdum við nýja veg yfir Dynjandisheiði mun ljúka árið 2024

86
0

Framkvæmdum við nýja veg yfir Dynjandisheiði mun ljúka árið 2024 samkvæmt samþykkt Alþingis frá 29. júní 2020 um samgönguáætlun fyrir árin 2020-2024.

<>

Áætlunin var endurskoðun nú í síðasta mánuði en er óbreytt hvað varðar Dynjandisheiði.

Dynjandisheiði 35,2 km kostn. 5.800 m.kr. 1.1. 2020
Ár Fjárveiting
2020 550
2021 1.050
2022 800
2023 1.400
2024 1.800

Fjárveitingarnar voru 550 m..kr í fyrra og 1.050 m.kr á þessu ári. Á næsta ári eru aðeins 800 m.kr. til framkvæmdanna. Athyglisvert er að 3.200 m.kr af 5.800 m.kr. kostnaði eru á tveimur síðustu árunum. Það hefur í för með sér að þunginn af framkvæmdunum verður að falla á tvö síðustu árin af þessum fimm.

Samkvæmt upplýsingum Bæjarins besta voru uppi hugmyndir hjá Vegagerðinni að auka framkvæmaþungann á þessu og næsta ári á Dynjandisheiðinni með því að færa fjárveitingar af öðrum verkum á landinu sem vinnast hægar en samþykkt var og endurgreiða það svo 2023 og 2024.

Með því móti tækist að flýta vegagerðinni á Dynjandisheiðinni. Horfið hefur verið frá þessum áformum m.a. vegna þess að ákveðið var að setja 2 milljarða króna af nýbyggingarfé í viðhald vega víða um land.

Þó verður á þessu ári bætt við útboðsverkið upp Pennudalinn og nýbygging vegarins mun ná að vegamótunum til Bíldudals.

Næsti kafli verksins verður boðinn út á næsta ári og hefst vinna við hann þá eins og samþykkt samgönguáætlun gerir í raun ráð fyrir.

Segja má að viðhaldsþörfin hafi verið tekin fram yfir flýtingu á Dynjandisheiði. Þessi ákvörðum hefur formlega verið tekin af yfirstjórn Vegagerðarinnar en telja má víst að hún hefur verið borin undir ráðherra málaflokksins.

Heimild: BB.is