Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu 2,15 km kafla Holtsvegar 206-01, Hunkubakkar – Fjaðrárgljúfur.
Helstu magntölur eru:
– Skeringar 4.300 m³
– Lögn stálræsa 90 m
– Fyllingar 2.400 m³
– Styrktarlag 0/90 4.000 m³
– Burðarlag 0/22 2.350 m³
– Tvöföld klæðing 14.400 m²
– Frágangur fláa 10.000 m²
Verklok eru 1. október 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 7. júní 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. júní 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.