Home Fréttir Í fréttum 09.06.2021 Sveitarfélagið Árborg. Suðurhólar – gatnagerð og lagnir

09.06.2021 Sveitarfélagið Árborg. Suðurhólar – gatnagerð og lagnir

164
0
Mynd: Sveitarfélagið Árborg.

Sveitarfélagið Árborg óskar eftir tilboðum í :

<>

„Suðurhólar – Gatnagerð og lagnir“

Verkið felur í sér gerð götunnar Suðurhólar frá Austurhólum að Gaulverjabæjarvegi.  Jarðvegskipta skal götustæðið, leggja styrktarlag, burðarlag og malbika götuna.

Einnig skal setja upp ljósastaura og leggja ljósastaurastreng.

Að auki skal leggja fráveitu, vatnsveitu, fjarskiptarör og hitaveitu gegnum Austurhóla.

 

Helstu magntölur eru:

Gröftur                                      10.000m³

Styrktarlag                                 13.200m³

Malbik                                        4.000m³

Fráveita                                          40m

Vatnsveita                                      20m

DN 250 hitaveitulögn                      20m

Uppsetning á ljósastaurum              11 stk

Verkinu skal að fullu lokið 1. nóvember 2021.

Útboðsgögn verða afhent á útboðvef sem er aðgengilegur hér:

https://arborg.ajoursystem.is/Tender#/tender/edit/615894dd-8156-437d-a2c6-12c510fdccb4/0

Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour.

Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði.

Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.

Skilafrestur tilboðs er til kl. 11.00 miðvikudaginn 9. júní 2021

Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur tilboða er liðinn. Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í kjölfar opnunar tilboða verður bjóðendum sent opnunaryfirlit rafrænt.

 

Mannvirkja og umhverfissvið Árborgar