F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verkefni:
Úlfarsárdalur – Hverfi 1. Yfirborðsfrágangur 2021, útboð nr. 15193
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verkið felst m.a. í því að jafna undir gangstéttar, leggja snjóbræðslu, reisa ljósastólpa, steypa kantsteina, steypa gangstéttar, steypa tröppur, steypa stoðveggi, malbika, leggja hellur, þökuleggja og ganga frá gróðursvæðum.
Helstu magntölur eru:
Gröftur 650 m3
Fylling 530 m3
Afrétting 3690 m2
Snjóbræðluslöngur 5200 m
Steypumót 313 m2
Bendistál 4400 kg
Steinsteypa 50 m3
Malbikun 885 m2
Kantsteinn 474 m
Steypt stétt 730 m2
Hellulögn 1230 m2
Þökulögn 1367 m2
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 14:00 þann 4. maí 2021, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00, 18. maí 2021.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2021