Akraneskaupstaður óskar eftir tilboði í viðhald gatna á Akranesi.
Um er að ræða viðgerðir steyptra gatna, yfirlögn með malbiki og gerð gönguþverana á Garðagrund, Leynisbraut, Smiðjuvelli, Hagaflöt og Holtsflöt.
Helstu magntölur:
– Uppbrot steypu 1.000 m2
– Malbikun 2.800 m2
Útboðsgögn eru einungis afhent á stafrænu formi, með því að senda tölvupóst á netfangið akranes.utbod@mannvit.is, þar sem fram kemur nafn bjóðanda ásamt netfangi, nafni og símanúmeri tengiliðs.
Tilboð verða opnuð á bæjarskrifstofu Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 18. maí 2021 kl. 11:00.