Home Fréttir Í fréttum 14.04.2021 Leikskóli Asparskógum 25, Akranesi – Uppsteypa og utanhúsfrágangur

14.04.2021 Leikskóli Asparskógum 25, Akranesi – Uppsteypa og utanhúsfrágangur

335
0
Tölvumynd: Batteríið arkitektar

Verkís hf., fyrir hönd Fasteignafélag Akranes, óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við uppsteypu og utanhúsfrágang við nýjan leikskóla að Asparskógum 25, Akranesi.

<>

Verkið nær til uppsteypu hússins, ásamt lagnavinnu við þá þætti sem tengjast uppsteypu. Verktaki skal koma fyrir gluggum og hurðum, ganga frá þakvirki, þakfrágangi og utanhússklæðningu.

Helstu stærðir:
– 1. hæð 966,6 m2
– 2. hæð 552,4 m2
– 3. hæð 46,3 m2
Heildarstærð byggingar 1565,3 m2 og 5607 m3

Verktaki tekur við byggingarsvæði frá jarðverksverktaka. Búið verður að fylla undir undirstöður, fylla í bílastæði og girða athafnarsvæði og setja upp hlið inn á vinnusvæðið.

Verklok á útboðsáfanga er 30. nóvember 2021, útboðsgögn verða afhent á stafrænu formi með því að senda tölvupóst á netfangið verkis.akranes@verkis.is þar sem fram kemur heiti verks, nafn bjóðanda, netfang og símanúmer tengiliðs bjóðanda.

Vettvangsskoðun verður haldin á verkstað 16. mars kl.14.00.

Tilboðum skal skila á skrifstofu Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18 Akranesi í síðasta lagi 14. apríl 2021 kl. 14:00.

 

Skoða nánar

Loading..