Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbætur á sjóvörn meðfram Strandvegi á 1.000 m kafla.
Helstu magntölur:
Útlögn á grjóti og sprengdum kjarna úr námu, um 4.550 m3
· Upptekt og endurröðun 2.400 m3
Verkinu í heild skal lokið eigi síðar en 1. ágúst 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 9. mars 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 23. mars 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.