Vegagerðin óskar eftir tilboðum í framleiðslu og flutning á steyptum niðurrekstrarstaurum undir brú á Þorskafjörð í Gufudalssveit.
Helstu magntölur eru:
· Framleiðsla niðurrekstrarstaura 6.520 m
· Flutningur niðurrekstrarstaura 1188,3 tonn
Verklok eru fyrir 1. júlí 2021
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 3.mars 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 16. mars 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.tb