
Áætlað er að byggja átta þúsund íbúðir og þrjá grunnskóla í Ártúnshöfða og Elliðaárvogi, stærsta þróunar -og uppbyggingarsvæði Reykjavíkur. Gert er ráð fyrir að fyrirhuguð Borgarlína liggi í gegnum mitt svæðið.
Um 20 prósent íbúa verða leiguíbúðir, stúdentaíbúðir, búseturéttaríbúðir og/eða íbúðir fyrir aldraða. Einnig er gert ráð fyrir að Félagsbústaðir geti átt allt að 5 prósent íbúða. Þetta kemur fram í skipulagstillögum á vef Reykjavíkurborgar.


Hverfið á að verða umhverfisvæn byggð í góðum tengslum við almenningssamgöngur. Miklir möguleikar verða til samgönguhjólreiða, góðra lífsgæða, uppbyggingar íbúða fyrir alla og síðast en ekki síst, grænt og fallegt hverfi.
Yst á svæðinu við Elliðavoginn er gert ráð fyrir sundlaug með heitum og köldum pottum og sjósundsaðstöðu.
Opinn streymisfundur til forkynningar á deiliskipulagsvinnu við Ártúnshöfða og Elliðaárvog mun fara fram fimmtudaginn 25. febrúar næstkomandi milli kl. 17 – 18.30.

Heimild:Frettabladid.is