Home Fréttir Í fréttum Spilavíti Trumps jafnað við jörðu

Spilavíti Trumps jafnað við jörðu

114
0
Niðurrif hússins tók einungis tuttugu sekúndur. Mynd: AP/SETH WENIG

Trump Plaza spilavítið í Atlantic City í Bandaríkjunum var jafnað við jörðu í dag. Sprengiefni voru notuð til að láta háhýsið falla inn á sig og urðu engar skemmdir á öðrum byggingum sem stóðu þar nærri.

<>

Spilavítið og hótelið hafði staðið tómt frá 2014 og var ástand byggingarinnar orðið verulega slæmt. Fjölmiðlar vestanhafs segja að brak hafi verið byrjað að falla af byggingunni og því hafi verið ákveðið að jafna hana við jörðu.

Fyrsta sprengingin heyrðist skömmu eftir klukkan tvö í dag (níu að staðartíma) og um tuttugu sekúndum seinna var háhýsið horfið og ekkert eftir nema rykmökkur.

Þó Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hafi látið byggja bygginguna hefur hún verið í eigu auðjöfursins Carl Icahn undanfarin ár. Hann eignaði tvö spilavíti Trump árið 2016 eftir síðasta gjaldþrot þeirra, af mörgum.

Trump opnaði spilavítið árið 1984 og gekk rekstur þess vel um tíma. AP fréttaveitan segir það hafa verið stærsta spilavíti Atlantic City um tíma.

Halla fór undan rekstrinum eftir að Trump opnaði annað spilavíti, Taj Mahal, nærri því fyrra. Þegar því var lokað árið 2014 skilaði Trump Plaza verstri afkomu af öllum spilavítum Atlantic City.

Hér má sjá videó af spreningunni

Heimild: Visir.is