Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu 2,7 km Langholtsvegar (341) og Auðsholtsvegar (341), frá Heiðarbyggð að Syðra-Langholti.
Helstu magntölur eru:
– Skeringar 5.945 m3
– Fláafleygar 4.765 m3
– Fyllingar 3.335 m3
– Styrktarlag 6.780 m3
– Burðarlag 3.090 m3
– Ræsi 90 m
– Tvöföld klæðing 18.460 m2
– Frágangur fláa 35.895 m2
Verklok eru 1. september 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 15. febrúar 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 2. mars 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.