Home Fréttir Í fréttum 26.02.2021 Hlemmur og nágrenni, endurgerð. Hönnun

26.02.2021 Hlemmur og nágrenni, endurgerð. Hönnun

230
0
Mynd: VÍSIR/VILHELM

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Hlemmur og nágrenni, endurgerð. Hönnun, EES útboð nr. 15075

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 12:00 þann 26. janúar 2021. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 26. febrúar 2021.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2020

Yfirlit yfir verkið:

Verkið felst í hönnun á endurgerð Hlemms og nágrennis.

Um er að ræða endurgerð götu- og torgrýmis með svipuðum hætti og hefur verið gert á miðborgarsvæði Reykjavíkur á undanförnum árum.

Ýmist er um að ræða forhönnun, for- og fullnaðarhönnun eða fullnaðarhönnun eingöngu. Yfirlit yfir svæði sem hanna skal er að finna á uppdráttum í fylgigögnum.
Reiknað er með að gangstéttar verði hellulagðar með snjóbræðslu og akbrautir malbikaðar.

Gert er ráð fyrir snjóbræðslu í allt Hlemmtorg og Rauðarárstíg norðan Hlemmtorgs.
Veitukerfi verða endurnýjuð.

Við hönnun þarf að taka mið af því að öll veitukerfi sem nú þegar eru til staðar verði virk meðan á framkvæmdum stendur.

Á Hlemmtorgi leggur verkkaupi til landslagsarkitekt og þarf hönnun Hlemmtorgs að vinna í nánu samstarfi við hann. Landslagsarkitekt ákveður efnisval og ýmsar útfærslur varðandi yfirborðsfrágang í samráði við verkkaupa og ráðgjafa.
Nánar tiltekið, felst hönnunarverkefnið m.a. í eftirfarandi:
•   Hönnun á götum, þ.m.t. á gangstéttum, hjólastígum, upphækkuðum gönguleiðum og gatnamótum.
•   Hönnun á Hlemmtorgi (í samvinnu við landslagsarkitekt verkkaupa).
•   Hönnun á undirstöðum fyrir götugögn.
•   Endurnýjun og breytingar á veitukerfum fráveitu, vatnsveitu, hitaveitu og rafveitu í samráði við Veitur ohf.  Reiknað er með að Gagnaveita Reykjavíkur og Míla annist hönnun á sínum kerfum.
•   Hönnun snjóbræðslu.
•   Hönnun á gatna- og torglýsingu.
•   Hönnun á skiltun og yfirborðsmerkingum.
•   Hönnun vinnusvæðamerkinga.

Þá skal ráðgjafi gera útboðsgögn vegna framkvæmda og fella inn gögn, s.s.  verklýsingar og teikningar, frá veitufyrirtækjum (Gagnaveitu Reykjavíkur og Mílu) og landslagsarkitekt verkkaupa (á Hlemm­torgi) og sjá um samræmingu útboðsgagna. Einnig skal ráðgjafi gera útboðsgögn fyrir framkvæmdaeftirlit.

Gera skal kostnaðaráætlun fyrir heildarverkið og kostnaðaráætlanir og efnislista yfir það sem verkkaupi leggur til fyrir hvert framkvæmda- og eftirlitsútboð.
Hönnun skal vera í samræmi við gildandi kröfur, staðla og aðrar reglur sem í gildi eru.

Einnig ber að hafa náið samráð við alla aðila sem að málinu koma, svo sem verkefnisstjóra verkkaupa, landslagsarkitekt verkkaupa (á Hlemmtorgi), veitufyrirtæki og skrifstofur Umhverfis- og skipulagssviðs.

Reikna þarf með aðkomu Gagnaveitu Reykjavíkur og Mílu ehf. eða aðila á þeirra vegum við hönnun lagnakerfa. Fyrirtækin leggja ráðgjafa til yfirlitsteikningar um núverandi lagnir sínar. Einnig þarf ráðgjafi að færa inn teikningar og verklýsingar landslagsarkitekts á Hlemmtorgi.

Áhersla er lögð á samvinnu gatnahönnuðar og landslagshönnuðar varðandi almennar útfærslur, yfirborðshönnun og yfirborðsfrágang gangstétta, hjólreiðastíga og gatna.
Sérstakt samráð skal ráðgjafi hafa við landslagsarkitekt á vegum verkkaupa varðandi almennar útfærslur, yfirborðshönnun og yfirborðsfrágang Hlemmtorgs. Einnig þarf að hafa samráð við landslagsarkitekt á vegum verkkaupa varðandi hönnun á blágrænum ofanvatnslausnum á Hlemmtorgi.

Helstu magntölur sem áætlaðar eru í verkinu eru eftirfarandi: 
Lengd gatna                                                                           470 m
Torg                                                                                         7.600 m2
Fráveitulagnir (tvöfalt kerfi)                                                 2.800 m
Vatnsveitulagnir                                                                    3.200 m
Hitaveitulagnir (tvöfalt kerfi)                                               3.200 m
Raflagnir (skurðlengd)                                                          3.200 m
Gatnalýsing                                                                            470 m
Torglýsing                                                                              7.600 m2
Snjóbræðsla                                                                           13.000 m2
Fjöldi útboðsgagna fyrir framkvæmdaverk                        6 stk
Fjöldi útboðsgagna fyrir eftirlitsverk                                   6 stk