Home Fréttir Í fréttum Fjögurra milljarða króna framkvæmd við höfnina í Þorlákshöfn

Fjögurra milljarða króna framkvæmd við höfnina í Þorlákshöfn

194
0

Stefnt er að því að ráðst í fjögurra milljarða framkvæmd við stækkun hafnarinnar í Þorlákshöfn þannig að það verði hægt að taka á móti 180 metra löngum skipum og 30 metra breiðum. Þá er stefnt að því að farþegaferja hefji siglingar frá Evrópu til Þorlákshafnar.

<>

Umsvif hafnarinnar í Þorlákshöfn eru alltaf að verða meiri og meiri en í dag koma þar tvær vöruflutningaferjur á vegum Smyril line í áætlunarsiglingum frá Evrópu til Þorlákshafnar í hverri viku. Þá er unnið að því að þriðja ferjan bætist við sem verður þá skip sem flytur fólk og bíla.. En fyrst þarf að stækka höfnina en það er verkefni upp á fjóra milljarða króna.

Um fjórir milljarðar króna munu fara í stækkun hafnarinnar í Þorlákshöfn og næstu árum.
MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

„Við bindum vonir við það að geta ráðist í útboð og framkvæmdir árið 2021 og innan tveggja til þriggja ára gæti verið farið að fara að ganga farþegaskip í reglulegum siglingum inn á Evrópu, þannig að hamingjan er hér,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri og bætir við;

„Í dag eru tvö skip í reglulegum siglingum inn á Evrópu. Það er skip á mánudögum og föstudögum og með því að bæta við skipi á miðvikudögum líka þá held ég að engum dyljist að Þorlákshöfn er nú þegar orðin ein helsta vöruhöfn í Evrópusiglingum og þriðja skipið treystir þá stöðu.“

Elliði segir verkefnið með farþegaferjuna mjög spennandi.

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi.
MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

„Já, þetta er gríðarlega spennandi og þarna skiptir ofboðslega miklu að þetta byggir ofan á sjókvíaeldið og landeldið, sem von er á. Það er vara til útflutnings og þannig hafi skipafélög vaxandi áhuga á að sigla frá Þorlákshöfn og sömuleiðis munar miklu fyrir fyrirtæki, bæði í kostnaði því bæði fyrirtæki og neytendur horfa líka meira í hvað það sparast mikill útblástur á gróðurhúsalofttegundum með því að sigla frá Þorlákshöfn versus Sundahöfn . Það munar bara um það bil sólarhring í siglingu, að þurfa ekki að fara fyrir Reykjanesið,“ segir Elliði.

Heimild: Visir.is