Home Fréttir Í fréttum 20.12.2020 Leigufélagið Bríet óskar eftir byggingaraðilum

20.12.2020 Leigufélagið Bríet óskar eftir byggingaraðilum

335
0
Mynd: Vísir/Vilhelm

Leigufélagið Bríet óskar eftir byggingaraðilum til að taka þátt í uppbyggingu íbúða víðsvegar um landið.

<>

Leigufélagið Bríet stefnir á uppbyggingu á hagkvæmum leiguíbúðum og auglýsir því eftir byggingaraðilum til samstarfs. Byggingaraðili skal vera aðalverktaki og annast framkvæmd verkefnis í samráði við sveitarfélagið og Leigufélagið Bríeti.

Gögn fyrir samstarfsaðila er hægt að nálgast með að senda tölvupóst á soffia@briet.is og skal gögnum skilað fyrir mánudaginn 21. desember 2020.

Við val á byggingaraðilum til samstarfs verður tekið tillit til reynslu aðila ásamt hagkvæmni og gæða lausna.

Smelltu hér til að skoða auglýsingu eftir byggingaraðilum í Vesturbyggð

Smelltu hér til að skoða auglýsingu eftir byggingaraðilum í Múlaþingi

Smelltu hér til að skoða auglýsingu eftir byggingaraðilum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Smelltu hér til að skoða auglýsingu eftir byggingaraðilum í Dalabyggð

Nánari upplýsingar veita Soffía Guðmundsdóttir framkvæmdarstjóri Bríetar (soffia@briet.is) og Elmar Erlendsson (elmar.erlendsson@hms.is).