Home Fréttir Í fréttum Eyjamenn byrja að bora vegna ganga

Eyjamenn byrja að bora vegna ganga

19
0
Boraðar verða tvær 300 metra holur, í Eyjum og á Landeyjasandi. mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson

„Við hefjum borunina í dag eða á morgun og reiknum með að bora hér í Eyjum í einn mánuð, tökum kjarna og greinum þá. Að því loknu flytjum við borinn á Landeyjasand og tökum kjarna þar,“ segir Haraldur Pálsson framkvæmdastjóri Eyjaganga um rannsóknarboranir vegna fyrirhugaðra jarðganga milli lands og Vestmannaeyja.

Haraldur reiknar með að vinnan við borholurnar taki tvo mánuði og að þeim loknum verði siglt með hljóðendurvarpsmæli sem mælir dýpt á jarðlögum undir sjávarborði milli lands og Eyja.

„Með niðurstöður þessara þriggja mælikvarða verður unnin skýrsla um fýsileikamat ganganna sem ég reikna með að verði tilbúin fyrir áramót.“

Heimild: Mbl.is