Næsti áfangi í stækkun Keflavíkurflugvallar skv. Þróunaráætlun flugvallarins er á næsta leyti og leitar Isavia að áhugasömum aðila til að taka þátt í verkefninu.
Verkefnið sem um ræðir nefnist NTA25 og felur það í sér uppfærslu á núverandi flugvélastæðum 1, 3 og 5 sem er mikilvægur liður í því að styðja við stækkun landgangs milli Norður- og Suðurbyggingar flugstöðvarinnar.
Verkefnið felur í sér hæðaraðlögun stæða og flughlaðs, þ.m.t. lagningar nýrrar steypu og malbiks, breytingar á afvötnun og lögnum, viðbætur við vatns- og hitakerfi ásamt lagningu rafmagnsröra til stuðnings við framtíðarsýn flugvallarins.
Framkvæmd NTA25 fylgir framkvæmd SLN21 og er gert ráð fyrir að framkvæmdir fari fram á um 5 ára tímabili og í tveimur fösum vegna krafna um aðgengi aðila um svæðið.
Allar nánari upplýsingar eru að finna á útboðsvef bjóðanda. ISAVIA Electronic Tendering Site – Home












