Ekki er gert ráð fyrir að höfnin í Helguvík verði á samgönguáætlun áranna 2015 til 2018 sem lögð verður fyrir Alþingi á ný í haust. Þetta segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, aðstoðarmaður innaríkisráðherra.
Þórdís segir að Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, hafi fundað með Ólöfu Nordal innanríkisráðherra í vor vegna málsins. Í fyrsta áfanga hafi Reykjnesbær viljað fá tæplega 300 milljónir króna úr hafnaráætlunarhluta samgönguáætlunar til að lengja hafnarkant Helguvíkurhafnar. Ráðherra hafi sýnt málinu skilning en krafan komið fram eftir að búið var að móta áætlunina. „Það er ekki reiknað með þessari upphæð þar þannig að það verður að beina þessu til þingsins og fjárlaganefndar,“ segir Þórdís.
Reykjaneshöfn hefur alls farið fram á 2,3 milljarða ríkisstyrk fyrir hafnarframkvæmdum eiga að kosta 4,3 milljarða króna. Eigið fé Reykjaneshafnar er neikvætt um 4,5 milljarða króna og uppsafnað tap fyrirtækisins frá árinu 2006 nemur 3,8 milljörðum króna. Markmið framkvæmdanna er að betur verið hægt að þjónusta þann iðnað sem vonast er eftir að taki til starfa á svæðinu. Heimild er fyrir 60 prósent ríkisstyrk í hafnarframkvæmdum samkvæmt hafnarlögum. Þar er gert ráð fyrir að höfnin hafi skilað rekstarafgangi með tilliti til vaxta og jákvæðum rekstrarafgangi að teknu tilliti til vaxta eða hafi nýtt kosti sína til tekjuöflunar með eðlilegum hætti og framlag ríkissjóðs raski ekki ótilhlýðilega samkeppni milli hafna.
Heimild: Visir.is