Home Fréttir Í fréttum Nýbygging Alþingis sparar 200 milljónir á ári

Nýbygging Alþingis sparar 200 milljónir á ári

74
0
Mynd: Birgir Þór Harðarson - RÚV
Nýtt fimm hæða skrifstofuhús sem rís á Alþingisreitnum í Reykjavík mun spara Alþingi 200 milljónir króna á ári.
Fjárhæðin verður annars greidd í leigu í miðborginni. Þetta segir Þorsteinn Sæmundsson þingmaður Miðflokksins og einn af varaforsetum Alþingis. Nýju bygginguna á að taka í notkun árið 2023.

Húsið mun breyta miklu fyrir Alþingi því þar með verður öll starfsemi þess komin á einn stað, fyrir utan þingfundina sjálfa.

<>

Í gær var skrifað undir samning við verktaka um þriðja áfanga byggingarinnar.

„Stærsta atriðið og það jákvæðasta er það að þessi framkvæmd mun þegar hún verður tekin í notkun spara Alþingi um 200 milljónir króna á ári sem hefur verið greidd í leigukostnað undanfarin ár undir þá aðstöðu sem nú verður í þessu nýja húsi,“ sagði Þorsteinn á Alþingi í gær.

„Og starfsemi Alþingis þar með öll samtengd og ég þykist vita það að þetta nýja hús verður Alþingi til mikilla heilla.“

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, hóf þingfundinn í gær á að óska þingmönnum og starfsfólki Alþingis til hamingju með daginn.

Tilefnið er undirritun samnings við ÞG verktaka um þriðja áfanga byggingar fimm hæða skrifstofuhúss á Alþingisreit.

Óskaði Steingrímur ekki síst þeim til hamingju sem ættu eftir að nota húsið en eins og fram hefur komið ætlar Steingrímur að hætta á þingi við lok þessa kjörtímabils á næsta ári en taka á húsið í notkun á fyrri hluta ársins 2023.

Samninginn undirrituðu þau Steingrímur, Ragna Árnadóttir skrifstofustjóri Alþingis og Þorvaldur Gissurarson fyrir hönd verktaka.

Heimild: Ruv.is