Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Þurfa að vinna rösklega í vetur á Dynjandisheiði

Þurfa að vinna rösklega í vetur á Dynjandisheiði

357
0
Pétur Hemmingsen, verkefnisstjóri ÍAV á Dynjandisheiði. Mynd: EGILL AÐALSTEINSSON

Framkvæmdir eru komnar á fullt við fyrsta áfanga nýs þjóðvegar yfir Dynjandisheiði. Fyrstu tíu kílómetrarnir eiga að vera tilbúnir með malbiki innan ellefu mánaða. Myndir frá sprengingum á verkstað mátti sjá í fréttum Stöðvar 2.

<>
Byrjað var á nýja veginum í brekkunni fyrir ofan Vegagerðarkarlinn eða Pennukarlinn, sem reistur var af brúarsmiðum árið 1958 við ána Pennu.
Mynd: EGILL AÐALSTEINSSON

Íslenskir aðalverktakar hófu verkið í Penningsdal ofan Flókalundar fyrir miðjan október. Á þeirra vegum vinna fimmtán starfsmenn á svæðinu undir stjórn Péturs Hemmingsen verkefnisstjóra, sem segir að gengið hafi þokkalega til þessa.

„Stærsti verkþátturinn í þessu verki eru sprengingar. Við erum bara á fullu í því núna,“ segir Pétur.

Sprengt fyrir nýja veginum í Pennusneiðingi. Horft niður til Vatnsfjarðar.
Mynd: EGILL AÐALSTEINSSON

Bara í Penningsdalnum er áætlað að sprengja þurfi 220 þúsund rúmmetra. Unnið er tólf tíma á dag, frá sjö á morgnana til sjö á kvöldin, og það þarf að vinna rösklega.

„Já, mjög. Og það er eiginlega aðaláskorunin í þessu verki. Það er verktíminn. Við eigum að klára hérna næsta haust. Þannig að: Já, þetta verður svona spretthlaup.“

Framkvæmdir eru einnig hafnar uppi á heiðinni, á Þverdal neðan gatnamóta Bíldudalsvegar.

Séð niður Þverdal í átt til Breiðafjarðar. Hægra megin fyrir miðri mynd má sjá tæki ÍAV í nýja vegstæðinu.
Mynd: EGILL AÐALSTEINSSON

Fyrsti áfanginn er tvískiptur. Kaflinn að sunnanverðu er 5,7 kílómetrar en einnig er 4,3 kílómetra kafli milli Dynjandisvogar og Borgarfjarðar í Arnarfirði, um Meðalnes. Verktakarnar einbeita sér fyrstu mánuðina að verkinu Vatnsfjarðarmegin.

„Og einhverntímann eftir áramótin förum við að vinna í Arnarfirðinum líka,“ segir Pétur.

Horft út Dynjandisvog. Vegurinn fyrir Meðalnes færist úr hlíðinni niður í fjöruna.
Mynd: EGILL AÐALSTEINSSON

Verksamningur þessa fyrsta áfanga er upp á 1.733 milljónir króna.

„Ég held að þetta verði mikil bylting fyrir fólkið hérna og aðra sem eiga leið um. Ekki spurning,“ segir verkefnisstjóri ÍAV.

Ef allt gengur að óskum verður það 30. september á næsta ári sem menn geta ekið eftir rennisléttu malbikinu.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:

Heimild: Visir.is/Kristján Már Unnarsson