Home Fréttir Í fréttum Fjarðarheiðargöng – Tillaga að matsáætlun

Fjarðarheiðargöng – Tillaga að matsáætlun

413
0
Fjarðarheiðargöng - teikning

Vegagerðin hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum Fjarðarheiðarganga. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.

<>

Tilgangur framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur á Austurlandi og hafa þar med jákvæð áhrif á samfélagið. Með jarðgöngum undir Fjarðarheiði verða samgöngur áreiðanlegri og öruggari.

 

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 10. nóvember 2020 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is

Eftirtaldir aðilar hafa fengið erindið sent með beiðni um umsögn: Múlaþing, Fiskistofa, Hafrannsóknastofnun, Heilbrigðiseftirlit Austurlands, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Landgræðslan, Landsnet, Minjastofnun Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Samgöngustofa, Skógræktin, Umhverfisstofnun og Veðurstofa Íslands.

Ákvörðunar Skipulagsstofnunar um tillöguna er að vænta 23. nóvember 2020.

Sjá frekar hér á heimasíðunni.

Heimild: Vegagerðin.is