Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Framkvæmdir við gerð ofanflóðavarna í Neskaupstað ganga vel

Framkvæmdir við gerð ofanflóðavarna í Neskaupstað ganga vel

946
0
Búkollur eru þessir risavöxnu vörubílar kallaðir. Stjórnendur þeirra eru Elíza Líf Óskarsdóttir og Dóra Sigfúsdóttir. Mynd: Fsr.is

Framkvæmdir við gerð snjóflóðavarna fyrir Neskaupstað byggingu varnargarðs og keila ofan byggðar í Neskaupstað eru nú í fullum gangi. Verkið var boðið út í apríl 2019, en verklok eru áætluð í desember 2021.

<>

Um er að ræða þriðja áfanga í gerð snjóflóðavarna fyrir Neskaupstað. Áður eru komin varnargarður og keilur neðan Drangagils auk upptakavarna (net) efst í Drangagili, sem og varnargarðar og keilur neðan Tröllagilja og upptakastoðvirki efst í Tröllagiljum.

Mynd: Fsr.is

Varnargarðurinn er um 17 metra hár, þar sem hann er hæstur. Hann er hlaðinn úr hleðslugrindum sem fylltar eru af 10-20 sentimetra unnu grjóti og skrúfast saman. Utan á hleðsluna bæjarmegin, kemur síðan jarðvegur sem síðan er hulinn gróðri og göngustígum.

Mynd: Fsr.is

Verkefni felst í að byggja varnargarð ofan byggðar í Neskaupstað undan Urðarbotnum og Sniðgili. Um er að ræða 380 metra langan þvergarð og 16 keilur í tveimur röðum.

Í verkinu felst einnig mótun yfirborðs skeringa flóðmegin við garða, gerð vinnuvega, varanlegra slóða, göngustíga og áningarstaða, gerð drenskurða, stækka umfang lækjarfarvega og rása, jöfnun yfirborðs og frágangur.

Reynsla frá öðrum stöðum hefur sýnt að ofanflóðamannvirki þjóna víða hlutverki vinsælla útivistarsvæða.

Verkefnastjóri verktaka er Benedikt Ólason. Mynd: Fsr.is

Framkvæmdir hafa gengið mjög vel og er verkið um það bil hálfnað. Verktaki áætlar að vinna áfram á þessu ári á meðan veður leyfir. Við verkið hafa unnið 14-16 starfsmenn á stórvirkum vinnuvélum.

Verktaki er Héraðsverk ehf. samningsupphæð er um 780 milljónir. Verkið hófst í júlí 2019 og eru verklok áætluð í desember 2021.

Heimild: Fsr.is