Home Fréttir Í fréttum Hótel Ísafjörður: Viðbygging þarf ekki í grenndarkynningu

Hótel Ísafjörður: Viðbygging þarf ekki í grenndarkynningu

302
0
Teikning af viðbyggingu við Hótel Ísafjörð. Mynd: BB.is

Byggingafulltrúi hefur afgreitt byggingarleyfisumsókn vegna viðbyggingar við Hótel Ísafjörð.

<>

Sótt er um að reisa viðbyggingu á steyptum sökklum og léttum útveggjum. Jafnframt er sótt um breytingar á innra fyrirkomulagi á 1. og 5. hæð.

Byggingarfulltrúi lagði til við skipulags- og mannvirkjanefnd að taka afstöðu til þess hvort framkvæmdin verði grenndarkynnt fyrir eftirfarandi aðilum þ.e. Aðalstræti 26, Hafnarstræti 2, Silfurtorgi 1, Silfurgötu 1 og 2.

Skipulags- og mannvirkjanefnd taldi ekki þörf á grenndarkynningu á fundi sem haldinn var á miðvikudaginn.

Heitir pottar og Spa á efstu hæð Mynd: BB.is

Gert er ráð fyrir stækkun hótelsins bæði á aðal- og deiliskipulagsstigi. Byggð verður viðbygging á 1. hæð og veitingasalur stækkaður. Alls er stækkunin um 200 fermetrar. Þá verður gerð baðstofa á 5. hæðinni með spa og pottum að sögn Daníels Jakobssonar.

Áætlaður kostbaður er um 100 milljónir króna. Daníel segir að sótt hafi upphaflega verið um í febrúar, áður en covid19 kom upp.

 

Framkvæmdum verði slegið á frest vegna kórónuveirufaraldursins og málið endurmetið þegar hann er genginn yfir, en gengið verður frá leyfum fyrir stækkuninni.

Mynd: BB.is

Heimild: BB.is