Vegagerðin óskar eftir tilboðum í smíði brúar á Hringveginum, yfir Jökulsá á Sólheimasandi, endurgerð vegarins beggja vegna og gerð bráðabirgðavegar.
Heildarlengd vegkafla á Hringvegi er um 1 km, 9 m breiður með 3,5 m breiðum akreinum og 1,0 m breiðum öxlum. Lengd bráðabirgðavegar er um 1 km.
Ný brú verður eftirspennt bitabrú í fimm höfum, alls 163 m.
Helstu magntölur eru:
Vegagerð:
· Fyllingar 27.000 m3
· Ónothæfu efni jafnað á losunarstað 29.000 m3
· Styrktarlag 11.280 m3
· Burðarlag 3.000 m3
· Einföld klæðing 6.900 m2
· Tvöföld klæðing 8.800 m2
· Grjótvörn 500 m3
· Bitavegrið, uppsetning 532 m
· Rif á brúm 2 stk.
Brúargerð:
· Gröftur 3.200 m3
· Fylling við steypt mannvirki 1.440 m3
· Mótafletir 3.970 m2
· Steypustyrktarjárn 304 tonn
· Spennt járnalögn 28 tonn
· Steypa 2.136 m3
· Vegrið á brú 324 m
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 15. nóvember 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með fimmudeginum 25. september 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00, þriðjudaginn 27. október 2020.
Sérstakur opnunarfundur verður ekki haldinn, en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildar tilboðsupphæð.