Búið er að tryggja fjármögnun fyrir nýja flugstöð á Akureyri. Þá verður 200 milljónum varið í hönnun á stækkun flugstöðvarinnar og 312 milljónir í flughlaðið.
Uppbygging nýrrar flugstöðvar gæti skapað hátt í 90 ársverk. Greint er frá þessu á eyfirska fréttavefnum Vikudegi og staðfestir Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í færslu á Facebook.
Þetta eru tímamót í baráttu Akureyrarbæjar til að tryggja nýja flugstöð á Akureyri, sem hefur orðið gríðarlega mikilvæg miðstöð fyrir bæði innanland- og millilandaflug síðustu ár.
Um Akureyrarflugvöll fóru 168.212 farþegar í innanlandsflugi og 16.050 í millilandaflugi árið 2019. Bæjarráð hefur skorað á stjórnvöld í mörg ár að bæta flugvöllinn.
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, undirrituðu viljayfirlýsingu síðastliðinn desember um frekari uppbyggingu á flugvellinum sem gátt inn í landið.
Í framhaldinu var hópurinn skipaður en í honum sátu fulltrúar ráðuneytanna, Akureyrarbæjar, Eyþings, ferðaþjónustunnar á Norðurlandi og Isavia.
Stækkanir og framkvæmdir við Akureyrarflugvöll og Egilsstaðaflugvöll eru meðal samgönguframkvæmda sem stjórnvöld ætla að flýta til að skapa störf í kórónaveirufaraldrinum. Þetta er hluti þeirra efnahagsaðgerða ríkisstjórnarinnar sem kynntar í mars.
„Það var mjög ánægjulegt að það tókst að tryggja fjármagn til nýrrar flugstöðvar og flughlaðs á Akureyrarflugvelli í gegnum fjáraukalög í mars,“ segir Njáll en tillögurnar voru unnar í fjármálaráðuneytinu og meirihluta fjárlaganefndar að sögn Njáls.
Nú sé unnið að því í ráðuneytinu að fullmóta sérstaka fjárfestingaráætlun til næstu þriggja ára.
Isavia vonast til að bjóða út byggingu flugstöðvarinnar í febrúar á næsta ári að því er fram kemur í frétt Vikudags.
Heimild: Frettabladid.is