Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Dýpkað við lönd­un­ar­kran­ana

Dýpkað við lönd­un­ar­kran­ana

307
0
Sand­gerðis­höfn. Vinnu­vél­arn­ar at­hafna sig úti í höfn­inni. mbl.is/​Reyn­ir Sveins­son

Unnið er að dýpk­un Sand­gerðis­hafn­ar með nýj­um og óvenju­leg­um hætti. Fyrst var grjóti og möl sturtað í sjó­inn og grafa notuð til að búa til at­hafna­svæði.

<>

Eru nú tvær öfl­ug­ar vél­ar við vinnu á svæðinu. Önnur ríf­ur efnið upp og hin mok­ar því til.

Verið er að dýpka höfn­ina fram­an við lönd­un­ar­krana við Norðurg­arð.

Dýpt­in við efstu lönd­un­ar­kran­ana verður 2,5 metr­ar en alls eru 6 lönd­un­ar­kran­ar á bryggj­unni og flot­bryggj­ur fyr­ir 70 litla báta. Svæðið sem unnið er á er um 23 metr­ar að breidd.

Stór vöru­bíll tek­ur við efn­inu og flyt­ur á urðun­arstað. Ell­ert Skúla­son ehf. er verktaki við dýpk­un­ar­fram­kvæmd­irn­ar.

Stefnt er að því að verk­inu ljúki í nóv­em­ber.

Heimild: Mbl.is