Uppsteypa og burðarvirki lokið
Uppsteypu nýs regluheimilis Oddfellow í Urriðaholti er nú lokið. Lokasteypa fór fram í síðustu viku og þar með er burðarvirki hússins fullbyggt og tilbúið til næstu áfanga.
Um er að ræða tæknilega krefjandi mannvirki þar sem metnaður hefur verið lagður í bæði hönnun og útfærslu. Uppsteypuverkið gekk vel og skilaði verktaki því á áætlun.
Verktaki uppsteypuverkefnisins
Verktaki uppsteypu og burðarvirkis er TILDRA Byggingafélag, sem sérhæfir sig í uppsteypu og hefur komið að fjölda stórra verkefna með góðum árangri.

BYGGINGAR.IS heimsótti verkstaðinn og ræddi við Tildrumenn við undirbúning á síðustu steypu.
Tæknilegar áskoranir í uppsteypu
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var verkið krefjandi, meðal annars vegna flókinna opa milli hæða hússins, sem kallaði á nákvæm vinnubrögð og vandaða framkvæmd að hálfu verktaka.
Næstu áfangar
Næstu áfangar framkvæmdar við nýtt regluheimili Oddfellow er frágangur utanhússklæðningar og innanhúsfrángur.
Unnið af: BYGGINGAR.IS
BYGGINGAR.IS fjallar reglulega um framkvæmdir og uppbyggingu mannvirkja á Íslandi.






























