Home Fréttir Í fréttum Prammi á stærð við handboltavöll

Prammi á stærð við handboltavöll

104
0
Kraninn verður notaður við stýringar á 70 cm sverum stálrörum sem verða boruð í klöpp undir sjávarborði. mbl.is/Eyþór

Framkvæmdir við Fossvogsbrúna eru hafnar og mikill viðbúnaður orðinn Kársnesmegin við brúarstæðið. Á verkstað er allt að verða tilbúið. Stálrörin og borvagninn eru komin og vinnubúðir og fjöldi starfsmanna að störfum.

Við verkið er notaður gríðarlega stór prammi sem er stærri en handboltavöllur og á honum er komið fyrir skrifstofum og starfsmannaaðstöðu. Á prammanum verður 300 tonna beltakrani sem er einn sá stærsti á Íslandi. Í undirstöður brúarinnar verða notaðir stálstaurar sem boraðir verða ofan í klöppina undir sjávarmáli.

Guðjón Örn Björnsson yfirverkefnisstjóri segir að Ístak mun hefja verkið Kársnesmegin þar sem unnið er á landi en þeir verkhlutar sem unnir séu á landi séu mun einfaldari en þegar verkið er unnið af pramma úti á sjó þar sem munur á flóði og fjöru sé um tveir metrar.

Heimild: Mbl.is