Algild hönnun bygginga er grundvallarkrafa samkvæmt byggingarreglugerð á Íslandi og tryggir að mannvirki séu aðgengileg öllum, óháð aldri eða færni.
Rétt hönnun skiptir miklu máli bæði fyrir notagildi og öryggi. Í þessari grein er farið yfir helstu kröfur, algeng mistök og hvernig algild hönnun er metin í úttektum.
Hvað er algild hönnun?
Algild hönnun felur í sér að byggingar og umhverfi séu hönnuð þannig að sem flestir geti nýtt sér þau án sérstakra aðlögunar.
Þetta á meðal annars við um:
- aðgengi hjólastóla
- auðvelda notkun fyrir eldri borgara
- örugga hreyfingu innan bygginga
Algild hönnun er ekki aðeins tæknileg krafa heldur mikilvægur þáttur í jafnræði og lífsgæðum.
Helstu kröfur samkvæmt byggingarreglugerð
Samkvæmt byggingarreglugerð þarf að uppfylla eftirfarandi atriði:
- Þröskuldar skulu vera lágir eða engir
- Hurðir skulu hafa næga breidd (minnst 800–900 mm)
- Rampar skulu vera með réttum halla
- Aðgengi skal tryggt að inngangi og sameiginlegum rýmum
- Lyfta skal vera til staðar í fjölbýli þar sem þess er krafist
Einnig þarf að tryggja:
Gott aðgengi að svölum skal vera.
Aðgengi að geymslum og bílastæðum skal vera fullnægjandi.
Algeng mistök
Í framkvæmd sjást oft eftirfarandi hönnunarmistök við öryggis og lokaúttektir. Sem leiðir oft til athugasemda í úttektum.
- Þröskuldar hurða eru of háir
- Rampahalli of brattur við innganga
- Hurðir of þröngar
- Aðgengi ekki tryggt að öllum rýmum byggingar
- Hönnun tekur ekki tillit til raunverulegrar notkunar
Algild hönnun er lykilatriði í nútíma byggingum og tryggir að mannvirki séu aðgengileg og örugg fyrir alla. Með því að fylgja byggingarreglugerð og huga að aðgengi frá upphafi má forðast algeng mistök og tryggja vandaða framkvæmd.












