Home Fréttir Í fréttum Tveir millj­arð­ar end­ur­greidd­ir vegn­a end­ur­bót­a og við­halds

Tveir millj­arð­ar end­ur­greidd­ir vegn­a end­ur­bót­a og við­halds

83
0
Hilmar Harðarson,

Samiðn telur brýnt að framlengja átakið en það á að öllu óbreyttu að renna út í lok þessa árs.

<>

Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar, Samtaka iðnfélaga, segir að átakið Allir vinna hafi sannað sig á erfiðum tímum í efnahagslífinu.

Endurgreiðslur vegna endurbóta og viðhalds hafi numið tæplega 2,3 milljörðum króna á tímabilinu janúar til 18. ágúst 2020. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Endurgreiðslan var tímabundið hækkuð úr 60 prósent í 100 prósent til að bregðast við niðursveiflu í efnahagslífinu af völdum COVID-19.

Hilmar bendir á að heimild til endurgreiðslu á virðisaukaskatti sé jafnframt víðtækari á þessu tímabili en áður og tekur m.a. til frístundahúsnæðis, mannvirkja í eigu tiltekinna félagasamtaka og bílaviðgerða.

Samiðn telur brýnt að framlengja átakið en það á að öllu óbreyttu að renna út í lok þessa árs.

19 þúsund umsóknir
„Alls hafði Skattinum borist tæplega 19 þúsund umsóknir um endurgreiðslur á virðisaukaskatti um miðjan ágúst vegna ofangreindra verkefna.

Það verður að taka með í reikninginn að umsóknirnar geta varðað kostnað sem hefur fallið til á fyrri árum af því að það eru ekki tímamörk á því hvenær þarf að vera búið að sækja um.

Þannig eru umsóknir vegna kostnaðar á árinu 2020 yfir sama tímabil frá janúar og fram um miðjan ágúst tæplega 14 þúsund.

Endurgreiðslur samtals vegna endurbóta og viðhalds námu tæplega 2,3 milljörðum króna á tímabilinu janúar til 18. ágúst 2020 en eins og áður segir er um að ræða kostnað sem féll til á fleiri árum.

Búið var að afgreiða tæplega 3.500 umsóknir vegna endurbóta og viðhalds á áðurnefndu tímabili vegna kostnaðar á árinu 2020 en enn er mikið óafgreitt af umsóknum ársins,“ segir Hilmar.

„Verkefnastaða iðnaðarmanna var góð í sumar en það er allsendis óvíst hvernig veturinn verður en búast má við áframhaldandi ágjöf á atvinnulífið,“ segir Hilmar. Mynd: Frettabladid.is

Á tímum COVID-19 hefur samdráttur orðið víða í atvinnulífinu. Hilmar segir það mikilvægt að horfa til verkefna sem stuðla að atvinnusköpun sem flestra.

„Verkefnastaða iðnaðarmanna var góð í sumar en það er allsendis óvíst hvernig veturinn verður en búast má við áframhaldandi ágjöf á atvinnulífið.

Það er því brýnt að halda hjólum atvinnulífsins gangandi og stuðla að því að það skili mikilvægum virðisaukandi verkefnum til samfélagsins.

Samiðn, telur virkilega þörf á að þetta átak haldi áfram en með því eru tvær flugur slegnar í einu höggi. Átakið lækkar annars vegar kostnað almennings en það er mikilvægt að hann geti leitað til fagmanna varðandi byggingarframkvæmdir og bílaviðgerðir og hins vegar verndar það mikilvæg störf í iðngreinum,“ segir hann.

Sveitafélög grípi til frekari framkvæmda
Hilmar segir einnig mikilvægt að sveitarfélögin grípi til enn frekari framkvæmda enda tekur umrædd endurgreiðsla einnig til framkvæmda og viðhalds á öllu húsnæði í eigu þeirra.

„Nú er lag að sveitarfélögin fari í framkvæmdir sem hafa lengi setið á hakanum sem og horfi til nýrra verkefna sem mikilvægt er að fara í.”

Heimild: Frettabladid.is