Mikið hefur verið byggt upp síðastliðin ár í vesturbæ Vestmannaeyja. Bæði í Goðahrauni og í Foldahrauni hafa risið nýir botnlangar af raðhúsum og einbýlishúsum.
Þá hefur einnig töluvert verið byggt upp í Kleifarhrauni.
Halldór B. Halldórsson fór með drónann yfir vesturbæinn í gær.
Myndbandið má sjá hér að neðan.
Heimild: Eyjar.net