Home Í fréttum Niðurstöður útboða Opnun útboðs: Hringvegur (1) um Kjalarnes, 1. áfangi, Varmhólar-Vallá

Opnun útboðs: Hringvegur (1) um Kjalarnes, 1. áfangi, Varmhólar-Vallá

378
0
Mynd: STÖÐ 2/SKJÁSKOT.

Opnun tilbioð 11. ágúst 2020.

<>

Breikkun Hringvegar frá Varmhólum að Vallá með hringtorgi við Móa og undirgöngum við Varmhóla og Saltvík auk hliðarvega og stíga.

Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar, Veitna og Gagnaveitu Reykjavíkur.

Um er að ræða breikkun á 4,13 km löngum kafla Hringvegar frá Varmhólum að Vallá. Breikka á núverandi 2 akreina veg í 2+1 veg með aðskildum akbrautum. Í verkinu eru hringtorg, tvenn undirgöng úr stálplötum, áningarstaður, hliðarvegir og stígar.

sFergja á vegstæði og framtíðarstæði stíga meðfram hliðarvegum. Verkinu tilheyra ræsi, regnvatnslagnir, veglýsing, lagnir fyrir upplýsingakerfi Vegagerðarinnar og breytingar á lögnum veitufyrirtækja.

Fyllingar (ferging) 230.000 m3
Fyllingar 38.000 m3
Skeringar, efni flutt á losunarstað 88.000 m3
Bergskeringar 11.000 m3
Sigplötur og sigslöngur 54 stk.
Ræsi 730 m
Styrktarlag 64.000 m3
Burðarlag 14.000 m3
Tvöföld klæðing 30.000 m2
Kaldblandað malbik 44.000 m2
Burðarlagsmalbik 22.000 m2
Slitlagsmalbik 22.000 m2
Víravegrið 4.200 m
Gröftur 23.000 m3
Vatnslagnir 3.700 m
Hitaveiturör 3.550 m
Jarðstrengir og jarðvír 5.700 m
Rör og ídráttarrör 4.000 m

Verkinu skal að fullu lokið fyrir  júní 2023.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Suðurverk hf. og Loftorka ehf, Garðabæ 2.586.871.000 116,2 281.376
Ístak hf., Mosfellsbæ 2.305.494.832 103,6 0
Áætlaður verktakakostnaður 2.226.193.910 100,0 -79.301