Vegagerðin býður hér með út nýjan vegarkafla á Bíldudalsvegi (63) um Botnsá í Tálknafirði, auk stykingar á um 1 km löngum kafla vegarins og gerð nýrrar brúar á Botnsá ásamt rifi á gömlu brúnni.
Ný brú yfir Botnsá verður eftirspennt plötubrú í einu hafi, 20 m löng, heildarlengd 22,4 m. Brúin er grunduð í lausu efni á steyptum staurum.
Vegagerð
Helstu magntölur eru:
- – Fyllingar 28.000 m3
- – Ræsalögn 228 m
- – Endafrágangur ræsa 24 stk.
- – Styrktarlag 8.500 m3
- – Burðarlag 3.150 m3
- – Tvöföld klæðing 12.432 m2
- – Bitavegrið, uppsetning 370 m
- – Rofvörnin – 1.200 m3
Brú
Helstu magntölur eru:
- – Gröftur 110 m3
- – Steyptir staurar, skurður 52 stk.
- – Mótafletir 783 m2
- – Steypustyrktarjárn 41 tonn
- – Spennt járnalögn 7 tonn
- – Steypa 420 m3
- – Vegrið á brú 74 m
Verkinu skal að fullu lokið 25. október 2021.
Útboðsgögn verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 20. júlí 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 18. ágúst 2020.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.