Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Góður gangur er nú á verkefni Alverks og Byggingafélag Námsmanna við...

Góður gangur er nú á verkefni Alverks og Byggingafélag Námsmanna við Bólstaðarhlíð

370
0
Mynd: Alverk ehf
Góður gangur er nú á verkefni Alverks og Byggingafélag Námsmanna – bygging 100 námsmannaíbúða sem rísa nú við Bólstaðarhlíð og Austurhlíð í Reykjavík.
Hluti íbúðanna eru svokallaðar „Co-living“ íbúðir, sem þýðir að þar deila íbúar sameiginlegu eldhúsi og stofu. Samtals skila þessar 100 íbúðir 126 leigurýmum fyrir um 150 íbúa.
Alls nemur byggingarmagnið 5.770 birtum fermetrum.
Undirbúningur þessa verkefnis hefur staðið lengi en útboð vegna verkefnisins fór fram í mars 2018, þar sem Alverk varð hlutskarpast bjóðenda.
Framkvæmdirnar eru fjármagnaðar með stofnframlagi frá Reykjavíkurborg og Íbúðalánasjóði og byggðar samkvæmt reglum um almennar íbúðir.
Eigandi verkefnisins er sjálfstætt undirfélag BN, Stakkahlíð hses.
Aðalhönnuðir Alverks eru Arkþing/Nordic ehf. og verkfræðihönnun er í höndum Vektors ehf. Áætlað er að framkvæmdum verði lokið í ágúst/september 2022.