Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Borgarverk hefst handa við endurgerð á Faxabraut á Akranesi

Borgarverk hefst handa við endurgerð á Faxabraut á Akranesi

442
0
Mynd: Akranes.is Frá vinstri: Sæmundu Víglundsson Borgarverk, Óskar Sigvaldason Borgarverk, Alfreð Þór Alfreðsson Akraneskaupstað, Jón Ólafsson Akraneskaupstað, Sævar Freyr Þráinsson Akraneskaupstað, Sigurður Páll Harðarson Akraneskaupstað, Pálmi Þór Sævarsson Vegagerðinni, Sverrir Reynisson Mílu og Helgi Helgason Veitum.

Nýverið var skrifaði Akraneskaupstaður undir verksamning við Borgarverk ehf um endurgerð á Faxabrautinni og grjótvörn meðfram henni.  Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað.

<>

Verkefnið sem um ræðir er stór þáttur til að uppbygging á Sementsreitnum geti hafist en hækka þarf yfirborð götunnar umtalsvert og laga sjóvarnargarð áður til að tryggja öryggi fyrir uppbyggingu svæðisins.

Alls bárust fjögur tilboð í verkið og þar voru Borgarverks menn hlutskarpastir en tilboð þeirra var uppá 467 m.kr eða 87,9% af áætluðum verktakakostnaði.

Verkefnið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Akraneskaupsstaðar, Veitna og Mílu og var boðið út á Evrópska efnahagssvæðinu.

Helstu magntölur í verkinu eru:

Rif steypu í vegum og stéttum 10.000 m²
Fyllingar 9.300 m³
Götulýsing, skurðgröftur og strengir 1.000 m
Rafstrengir 300 m
Fráveitulagnir 1.300 m
Kaldavatnslagnir 200 m
Hitaveitulagnir 400 m
Styrktarlag 4.500 m³
Burðarlag 2.200 m³
Malbik 16.000 m²
Grjótvörn 37.000 m³
Göngustígar 700 m²
Kantsteinar 1.850 m

Stefnt er að verktaki hefjist handa með haustinu og að verkinu verði að fullu lokið eigi síðar en 1. september 2021.

Heimild: Skagafrettir.is