Framkvæmdir við Icelandair hótelið sem rís nú við Austurvöll eru langt komnar, en þar er stefnt að verklokum í haust.
Fyrir skömmu var sótt um að breyta því sem átti að verða að 650 fm skrifstofurými í hótelherbergi vegna mikils framboðs á skrifstofurými á svæðinu.
Í myndskeiðinu eru byggingarnar skoðaðar með dróna þar sem umfang framkvæmdanna sést vel. Icelandair hótelin eru sem kunnugt er í eigu malasíska kaupsýslumannsins Vincent Tan.
Heimild: Mbl.is