Óskað er eftir tilboðum í verkið:
Ljósleiðarablástur og tengingar FTTH Salir
Verk þetta nær til ljósleiðarablásturs og annarrar tengdrar vinnu á þeim svæðum sem lýst er í útboðsgögnum.
Verktaki skal annast undirbúning og blástur ljósleiðarastrengja í rörakerfi GR ásamt frágangi tenginga ljósleiðara.
Verkið er nánar skilgreint í útboðsgögnum GRV 2015-15
Verklok eru 26.10.2015
Tilboð verða opnuð hjá Gagnaveitu Reykjavíkur Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík, fimmtudaginn 06.08.2015 kl. 11:00