Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í verkið: Hellnahraun 4. áfangi – Gatnagerð og veitulagnir (fráveitu- og neysluvatnslagnir, ásamt lögnum fyrir hitaveitu, rafveitu og fjarskiptalagnir).
Hellnahraun 4. áfangi er nýjasta iðnaðarsvæðið í Hafnarfirði og afmarkast af fyrirhuguðum ofanbyggðavegi í suðri, iðnaðarsvæði Hellnahrauns 3.áfanga í austri, Akstursíþrótta- og skotæfingasvæði í norðri og fyrirhugaðri tengibraut í vestri.
Helstu stærðir og magntölur fyrir hverfið eru eftirfarandi:
- Lengd gatna 900 m
- Lengd stíga 120 m
- Uppúrtekt úr götum og stígum 000 m3
- Losun á klöpp í götu- og stígastæði 200 m3
- Losun á klöpp í skurðstæði 700 m3
- Styrktarlag 000 m3
- Fyllingar 800 m3
- Malbik 300 m2
- Fráveitulagnir 100 m
- Neysluvatnslagnir 510 m
- Skurðir veitna 260 m
Verkinu er skipt upp í þrjá verkhluta með skiladagsetningum. Verklok eru 1. nóvember 2027.
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum sem eru rafræn og aðgengileg á útboðsvef VSB verkfræðistofu (https://vsb.ajoursystem.net/tender).
| Útboðsgögn afhent: | 08.03.2026 kl. 00:01 |
| Skilafrestur | 08.04.2026 kl. 10:55 |
| Opnun tilboða: | 08.04.2026 kl. 11:00 |
Tilboð verða opnuð rafrænt miðvikudaginn 8. apríl 2026.












