Home Fréttir Í fréttum Notre Dame-kirkja eins og nýbygging

Notre Dame-kirkja eins og nýbygging

20
0
Notre Dame er meðal fegurstu kirkjubygginga heims eftir endurbæturnar sem tóku nokkur ár. mbl.is/Baldur

Notre Dame-dómkirkjan í París er sem ný eftir viðamiklar endurbætur. Þeim er þó ekki lokið og eru enn stillansar við hluta kirkjunnar.

Sagt var frá því í Morgunblaðinu 9. nóvember 2024 að klukkur Notre Dame hefðu ómað daginn áður yfir borginni í fyrsta skipti frá brunanum mikla 15. apríl 2019. Kirkjan var opnuð 7. desember 2024 eftir endurbætur og er sem ný.

Fjöldi handverksmanna vann árum saman að endurgerðinni. mbl.is/Baldur

Frakkar kappkostuðu að gera endurbygginguna sem best úr garði og hefur kostnaður við verkið verið metinn á um og yfir 100 milljarða króna.

Heimild: Mbl.is