Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdum seinkar við byggingu íbúða fyrir fatlaða í Vestmannaeyjum

Framkvæmdum seinkar við byggingu íbúða fyrir fatlaða í Vestmannaeyjum

238
0
Strandvegur 26. Ljósmynd/TMS

Á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja 21 april sl. fór bæjarstjóri yfir bréf Magnúsar Sigurðssonar, f.h. Steina og Olla um stöðu framkvæmda við byggingu íbúða fyrir fatlaða við Strandveg 26.

<>

Vegna tíðarfars í vetur hefur uppsteypu hússins seinkað og vegna sóttkvíar starfsfólks fyrirtækisins í vor er ljóst að enn frekari seinkun verður á afhendingu hússins sem átti að afhendast í lok mars samkvæmt samningi.

Áætluð afhending á umsömdu framkvæmdastigi er nú áætluð í ágúst eða september. Þá á eftir að innrétta íbúðirnar.

Í niðurstöðu ráðsins þakkar bæjarráð upplýsingarnar og lýsir áhyggjum af seinkuninni.

Mikilvægt er að fyrirtækið leggi allt kapp á að ljúka við framkvæmdir hið fyrsta svo hægt sé að halda áfram með verkið og íbúar geti flutt inn sem fyrst.

Heimild: Eyjar.net