9.7.2015
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í enduruppbyggingu Uxahryggjavegar milli Skarðs og Brautartungu. Lengd vegar er 5,42 km.
Helstu magntölur eru:
Fyllingar og fláafleygar 14.200 m3
Skeringar 26.200 m3
Þar af bergskeringar 2.100 m3
Neðra burðarlag 20.800 m3
Efra burðarlag 6.100 m3
Tvöföld klæðing 35.400 m2
Frágangur fláa 60.000 m2
Verki skal að fullu lokið 1. nóvember 2016.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni, Borgarbraut 66, Borgarnesi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 14. júlí 2015.
Verð útboðsgagna er 6.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl 14:00 þriðjudaginn 28. júlí 2015 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.