Home Fréttir Útboð 28.07.2015 Hólmavík – Lenging grjótgarðs 2015

28.07.2015 Hólmavík – Lenging grjótgarðs 2015

105
0

9.7.2015

<>

Hafnarstjórn Strandabyggðar óskar eftir tilboðum í ofangreint verk. Verkið felst í að lengja eystri grjótvarnagarð Hólmavíkurhafnar um 30 m. Helstu verkþættir eru:

·         Upptekt og endurröðun á grjóti af garðsenda. Magn um 500 m³

·         Vinna efni í námu og byggja garðs. Magn um 5200 m³.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. október 2015.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni, Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) og á skrifstofu Strandabyggðar, Höfðagötu 3, Hólmavík frá og með þriðjudeginum 14. Júlí 2015. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 28. júlí 2015 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.