Home Fréttir Í fréttum Tvöföldun Hvalfjarðarganga og Sundabraut meðal verkefna sem boðuð eru í frumvarpi Sigurðar...

Tvöföldun Hvalfjarðarganga og Sundabraut meðal verkefna sem boðuð eru í frumvarpi Sigurðar Inga

192
0
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnaráðherra. Mynd: VÍSIR/VILHELM

Lagt er til að sex stór verkefni í vegagerð verði unnin sem svokölluð samvinnuverkefni samkvæmt frumvarpi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra sem lagt hefur verið fram á Alþingi. Áætlað er að þessi verkefni geti skapað allt að fjögur þúsund ársverk.

<>

„Markmið laganna er auka verulega fjármagn til vegaframkvæmda og mæta mikilli þörf fyrir fjárfestingar í samgöngum, bæta umferðaröryggi og stytta og bæta vegtengingar milli byggða,“ segir meðal annars í tilkynningu ráðuneytisins um málið.

Þessi sex verkefni eru hringvegur norðaustan Selfoss og brú um Ölfusá, hringvegurinn um Hornafjarðarfljót, vegurinn um Öxi, tvöföldun Hvalfjarðarganga, hringvegurinn um Mýrdal og jarðgöng í Reynisfjalli og loks Sundabraut.

Af þessum sex verkefnum er undirbúningur kominn hvað varðar byggingu brúar yfir Hornarfjarðarfljót og Ölfusá.

Með samvinnuverkefnum er átt við að Vegagerðinni verður heimilt að eiga samvinnu við einkaaðila um hönnun, undirbúning, framkvæmd og fjármögnun, að undangengnu útboði, við þessi sex afmörkuðu verkefni.

Þá verður heimilt að fjármagna verkefnin að öllu leyti eða hluta með gjaldtöku. Gjaldtaka má þó að hámarki standa í þrjátíu ár og má ekki hefjast fyrr en framkvæmdum er lokið.

Áformin voru fyrst kynnt í júlí 2019 en þau eru hluti af tillögu að samgönguáætlun fyrir árin 2020 til 2034.

„Það er ljóst er að jafn umfangsmiklar framkvæmdir, eins og samvinnuverkefnin boða, skapa mikinn fjölda ársverka, bæði hjá verktökum en ekki síður hjá ráðgjöfum og hönnuðum.

Áætla má að í heild verði til á bilinu 3.000-4.000 ársverk. Þau mynda einnig sterkan hvata til nýsköpunar sem getur lækkað kostnað og stytt framkvæmdatíma,“ er haft eftir Sigurði Inga Jóhannssyni, samgönguráðherra í tilkynningunni.

Heimild: Visir.is