6.7.2015
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurgerð 2,3 km Búrfellsvegar frá Þingvallavegi að Búrfelli, ásamt útlögn klæðingar.
Helstu magntölur eru:
Fláafleygar 4.910 m3
Skering 4.795 m3
Ræsi 60 m
Fylling 11.375 m3
Neðra burðarlag 4.390 m3
Efra burðarlag 1.770 m3
Tvöföld klæðing 15.300 m2
Frágangur fláa 25.540 m2
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 15. október 2015, þó skal lögn tvöfaldrar klæðingar lokið 1. október 2015.
Útboðsgögnin verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka), frá og með mánudeginum 6. júlí maí 2015. Verð útboðsgagna er 5.000 krónur.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 14. júlí 2015 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.